Hópur 4: Rocket League (2011-2012)

Upplýsingar

Hópur 4

Rocket League (2011-2012)

Þriðjudagar 17:30 - 19:00
Fimmtudagar 17:30 - 19:00

Rafíþróttadeild Breiðabliks vill gefa börnum og unglingum í Kópavogi kost á markvissum æfingum og heilbrigðum spilaháttum þegar kemur að tölvuleikjum. Við viljum einnig styðja við virka samkeppni innanlands sem og að hjálpa iðkenndum að ná hámarksárangri. Þessu viljum við áorka með því að skapa félagslegt og stuðningsríkt umhverfi fyrir iðkendur við fyrsta flokks aðstæður. Það er okkar trú að markviss æfing á tölvuleikjum í réttu umhverfi getur haft jákvæð áhrif á iðkendur.

Við biðjum forsjáraðila að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forsjáraðila og við skráningu er forsjáraðili að samþykkja að iðkandinn spili þá leiki sem eru í boði með ákveðnum foreldraeftirlits stillingum.

Æft er 2x í víku, 1,5 klst í senn. 40 iðkendur í hóp. Kennslustundir verða 90 mínútna langar og iðkendur eru um 40 talsins í hverjum hóp. Æfingar byrja á 20 mínútna fræðslu og upphitun sem felst í að liðka, teygja, tryggja góða líkamstöðu og koma í veg fyrir álagsmeiðsl. Síðan er spilað í 50 til 60 mínútur sem er gott viðmið þegar kemur að skjátíma.

Rafíþróttadeild Breiðablik áskilur sér rétt til að breyta æfingatímum eða fella niður námskeið náist ekki lágmarks iðkendafjöldi.